Menningarfélagið Bryggjuskáldin
Menningarfélagið Bryggjuskáldin hefur verið starfrækt frá árinu 2017. Þetta er óformlegur félagsskapur á Suðurnesjum og eitt meginverk félagsins er að halda ljóðasamkeppnina Ljósberann en hún er hugarfóstur Guðmundar Magnússonar skálds og kvikmyndagerðarmanns.
Ljósberinn hefur verið haldin árlega frá árinu 2018. Æskilegt er að ljóðin fjalli um Suðurnes á einn eða annan hátt. Veitt hafa verið ein verðlaun og tvö ljóð fengið viðurkenningar. Afhending verðlauna og viðurkenninga hefur farið fram í tengslum við menningarhátíðina Ljósanótt í Reykjanesbæ en ætlunin er að tengja viðburðinn sterkar beint við Suðurnes.
Í dómnefnd keppninnar hafa verið skáld af Suðurnesjum og víðar.
Verðlaunahafar ljóðasamkeppninnar Ljósberans eru:
2019 Gunnhildur Þórðardóttir
2022 Ragnheiður Lárusdóttir
2023 Garibaldi
2024 Ægir Þór Jahnke