Blóð á striga

2.450 kr.

Blóð á striga. Ljóðaþýðingar – úr ensku; ýmsir höfundar. 96 bls. 24 skáld. Útgáfuár 2008.

Blóð á striga er safn þýðinga á ljóðum eftir ensk og bandarísk skáld ásamt einu írsku. Í formála segir þýðandinn, Garðar Baldvinsson, m.a.:

„Ef lesandinn finnur til þess við lesturinn að fyrirbæri sem við tengjum yfirleitt við tækni, borgir og skipulag hafa tekið á sig blæ hins náttúrulega, t.d. þegar vegrið við þjóðveginn verða svuntur, ef hann telur ljóðin sýna þegar á líður einhvers konar samruna við þessa tæknilegu hluti, jafnvel þótt samruninn sé erfiður eins og þegar troða skal ávölum kvenlíkama í ferhyrndan kassa, þá tel ég tíma mínum vel varið og í reynd markmiðinu náð.“

Höfundarnir í bókinni eru bæði lífs og liðnir, heimsfrægir og minna þekktir. Blóð á striga inniheldur ljóð eftir þessa höfunda: William Wordsworth, Walt Whitman, Emily Dickinson, D.H. Lawrence, e.e. cummings, Langston Hughes, Stanley Kunitz, Elizabeth Bishop, Gwendolyn Brooks, Charles Bukowski, Allen Ginsberg, Adir Red, Mary Oliver, Lucille Clifton, Diane Wakoski, Quincy Troupe, William Heyen, Latif Asad Abdulla, Christopher Nolan, Julia Copus og Natasha Le Bel.

Categories: ,

Reviews

There are no reviews yet.

Be the first to review “Blóð á striga”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *