Ertu að skilja?
2.950 kr.
Ertu að skilja? Handbók fyrir feður í skilnaðarhugleiðingum. 95 bls. Útgáfuár 2006.
Bókin Ertu að skilja? er hvatning fyrir foreldra til að vera báðir áfram virkir uppalendur barna sinna eftir skilnað. Sögulegt yfirlit yfir lagaþróun sifjamála á Íslandi er fróðleg og áhugaverð lesning. En bókin er líka mikilvægt innlegg í jafnréttisumræðuna. Höfundur bendir á að við skilnað er feðrum oft ýtt til hliðar í uppeldishlutverkinu. Einnig er bent á þá staðreynd að konur eru gerendur í ofbeldismálum, en mikil þögn hefur ríkt um þetta í okkar samfélagi. Bókin er þarft innlegg í þjóðfélagsumræðuna og full ástæða til að óska Garðari Baldvinssyni til hamingju.
Gísli Gíslason, formaður Félags ábyrgra feðra.
Mynd framan á kápu er eftir son höfundar, Viðar Snæ.

Reviews
There are no reviews yet.