sjötíu bragandi dúfur

4.450 kr.

eru 38 ljóð sem lýsa sambandi hans við yngsta bróður hans, þeim erfiðu aðstæðum sem þeir alast upp við, kærleikanum milli þeirra og áfallinu þegar bróðirinn deyr aðeins sautján ára með allt lífið framundan. Síðari hluti ljóðaflokksins lýsir sorg og upprisu ljóðmælanda þegar hann snýr harmi í sigur og finnur ást til lífsins.

sjötíu bragandi dúfur  kom út í október 2024. Hún er tíunda ljóðabók Garibalda. Í bókinni eru 38 ljóð sem lýsa sambandi hans við yngsta bróður hans, þeim erfiðu aðstæðum sem þeir alast upp við, kærleikanum milli þeirra og áfallinu þegar bróðirinn deyr aðeins sautján ára með allt lífið framundan. Síðari hluti ljóðaflokksins lýsir sorg og upprisu ljóðmælanda þegar hann snýr harmi í sigur og finnur ást til lífsins.

Garibaldi hannaði kápu en ljósmynd af dúfunum er frá bróður hans, Sigurði Stefáni Baldvinssyni.

Verð kr. 4.450.–

Kaupa

Category:

Description

Í bókinni eru m.a. ljóðin „hvolf“ og „segðu satt“ sem hlutu 1. og 2. verðlaun í ljóðasamkeppni Ljósberans haustið 2023. Dómnefnd hrósaði fyrra ljóðinu fyrir að fanga spurningar um möguleika og hlutverk hvítvoðungs og sagði það varpa „ljósi á umkomuleysi og ábyrgð mannsins í þeim heimi sem hann fæðist í“. Dómnefndin kallaði „segðu satt“ áleitið ljóð sem spyrði erfiðra spurninga um lífið og dauðann, hvort líf væri eftir dauðann og „til hvers lifum við og til hvers deyjum við?“

Umsagnir um sjötuíu bragandi dúfur:
„Áhrifamikil ljóðabók – bróðurtorrek – sem ber vitni um að höfundi hefur tekist að láta dauða bróðurins knýja sig til lífsþróttar“
Sofía Auður Birgisdóttir gagnrýnandi, Són

„Dásamleg ljóðabók, átakanleg en um leið falleg“
Eygló Jónsdóttir skáld

„Mögnuð ljóðabók, hlýjar, sterkar og átakanlegar myndir af lífshlaupum“
Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur

„Ljóðmálið er ótrúlega sterkt og fallegt og orðkyngin á köflum dásamleg“
Harpa Rún Kristjánsdóttir skál

Reviews

There are no reviews yet.

Be the first to review “sjötíu bragandi dúfur”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *