Sögunarkarl, goðverur, sjálf

3.950 kr.

Sögunarkarl, goðverur, sjálf. Greinar um bókmenntir inniheldur 14 greinar ásamt nokkrum ritdómum um bókmenntir, íslenskar og vestur-íslenskar. Er iðulega rætt um efnið á nótum fræðilegrar orðræðu um veruleika, sjálfsveru og kyn. Greinarnar eru samdar á síðustu 25 árum og hafa flestar birst áður í tímaritum eða bókum.

Category:

Description

Vestur-Íslendingar stigu á land í nýjum heimi er vestur kom og þurftu að finna sér nýjar aðferðir við að tjá sig og þann nýja veruleika sem blasti við þeim í framandi aðstæðum. Bókmenntir íslensku nýbúanna þróuðust um margt öðruvísi en gerðist heima á Íslandi, bæði um efni og efnistök. Þegar vestur-íslenskir rithöfundar voru að kljást við nýjan veruleika og mörk tungumálsins voru höfundar hér á Fróni að færa út landamæri málsins í aðrar áttir en handan hafsins. Er í bókinn mest rætt um Jóhann Magnús Bjarnason, Guðrúnu Helgu Finnsdóttur, Lauru Goodman Salverson og Kristjönu Gunnars sem færir þessar bókmenntir inn á svið póstmódernisma með því t.d. að flækja tengsl tungumáls, veruleika og sjálfs, og að taka upp myndmál púsluspilsins sem eldri höfundar ýjuðu að snemma á 20. öld. Módernismi og síðar póstmódernismi síuðust inn og stundum með rykkjum bæði í íslenskar og vestur-íslenskar bókmenntir. Á sjöunda áratugnum var óvenjumikil gróska í sagnagerð hér á landi með höfundum eins og Ástu Sigurðardóttur, Guðbergi Bergssyni og Svövu Jakobsdóttur sem kollvörpuðu hefðbundnum hugmyndum um hvað væri saga og bókmenntir. Síðar urðu frekari umskipti í ljóðagerð með skáldum eins og Sigfúsi Bjartmarssyni og Gyrði Elíassyni sem líkja veruleika samtímans við tölvuleiki.

Reviews

There are no reviews yet.

Be the first to review “Sögunarkarl, goðverur, sjálf”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *