Söngur regns og grafar
2.450 kr.
Söngur regns og grafar eftir bretónska skáldið Xavier Grall í þýðingu Ólafar Pétursdóttur. 108 bls. Útgáfuár 2007.
Í Söng regns og grafar leitast bretónska skáldið Xavier Grall við að endurheimta þjóðerni sitt og baráttuna við skilningsvana franskt yfirvald og gleymskuna sem ógnar brentónskri menningu. Grall var blaðamaður, rithöfundur og skáld. Hann fæddist 1930 á Bretaníuskaga og lést þar langt fyrir aldur fram 1981. Grall taldi sig hafa verið svikinn um föðurarf sinn þar sem honum, eins og öðrum Bretónum þess tíma, var meinað að tala bretónsku. Ljóðlist Gralls var uppgötvuð, ef svo má segja, að honum látnum og þykir hann nú einna merkastur bretónskra skálda sem ritað hafa á frönsku.
Xavier Grall var bretónskur blaðamaður, rithöfundur og skáld. Hann fæddist 1930 á Bretaníuskaga og lést þar langt fyrir aldur fram 1981. Grall starfaði árum saman í París við blaðamennsku en fluttist aftur til Bretaníu árið 1973. Þar bjó hann á afskekktum bæ og skrifaði pistla fyrir hið virta dagblað Le Monde.
Xavier Grall taldi sig hafa verið svikinn um föðurarf sinn þar sem honum, eins og öðrum Bretónum þess tíma, var meinað að tala bretónsku. Ljóðlist Gralls var uppgötvuð, ef svo má segja, að honum látnum og þykir hann nú einna merkastur bretónskra skálda sem ritað hafa á frönsku.
Harðbýl er sveit, sandhólar og regn
hér bjó ég mér ból
leitið, þið finnið mig ekki
hér er það, hér sem eðlur
kveikja líf í fornum bautasteinum
hér sem kviknar líf í mér
ég er goðsögunni jafnforn
tvö þúsund vetra að aldri
enginn þekkir mig
Úr ljóðinu „Segið þeim það í borginni“.





Reviews
There are no reviews yet.