Steinarnir hrópa
3.950 kr.
Steinarnir hrópa eftir Hikaru Okuizumi er þýðing á japönsku skáldsögunni Ishi no raireki úr ensku. Útgáfuár 2007.
Steinarnir hrópa hlaut hin virtu Akutagawa verðlaun í Japan, en þau eru ein mesta upphefð sem rithöfundi getur hlotnast þar í landi. Höfundurinn, Hikaru Okuizumi, er fæddur 1956 á Yamagata í Japan. Hann hefur skrifað fjölda skáldsagna og hlotið margvíslegan heiður í heimalandi sínu.
Í sögunni segir frá Tsyoshi Manase, steinasafnara sem hefur barist í seinni heimsstyrjöldinni með Hinum keisaralega her Japans. Minningar úr stríðinu ásækja Manase þegar hann verður fyrir ofbeldisfullri reynslu löngu síðar. Sagan er í senn átakanleg og skáldleg lýsing á starfsemi minnisins og baráttu mannsins við að staðsetja sig í veruleikanum.
Reviews
There are no reviews yet.