Description
Þagnafár fjallar semsagt um samband föður míns við yngsta son sinn en einnig við yngsta bróður sinn, áföllin af dauða þeirra tveggja. En hún fjallar ekki síður um erfiðleika hans við að tjá tilfinningar sínar. Hann var auðvitað af kynslóðinni á undan mér – kynslóð sem þekkt er fyrir að tala lítt um sín hjartans mál. En það var auðvitað líka fleira. Ég tek mér mikið skáldaleyfi með því að láta hann tala um eigin tilfinningar og upplifanir og setja þær í samhengi við líf sitt þótt þær séu yfirleitt – í bókinni – mjög samhengislausar fyrir honum. Hann skilur t.d. ekki hvernig áfallið af slysalegum dauða yngsta bróður hans rúmum fjörutíu árum áður er sífellt að skjótast inn í hugsanir hans í kirkjugarðinum og gegnum lífið.
Faðir minn giftist móður minni þegar ég var tveggja ára. Í bókinni eru þau ástfangin og hann kallar hana álfadrottninguna. Hún er í bókinni eins og í raunveruleikanum mikill ofbeldisseggur – skvetti jafnvel á hann heitu kaffi, niðurlægði hann með illum orðum áratugum saman og elti hann um alla íbúð með hníf á lofti mörg hundruð sinnum.





Reviews
There are no reviews yet.