Úr ritdómi um sjónbauga:
Morgunblaðið.
Kvika.
Skafti Þ. Halldórsson.
„Það er eins og allt sé á óreiðukenndri hreyfingu, myndmál, hugmyndir og heildarsýn. [Þetta] eru eins konar flæðiljóð þar sem hugmyndir skarast, samhengi er rofið, greinarmerkjum er sleppt og setningafræði látin lönd og leið í eldgosi hugmynda og orða.“
„Um sumt minnir þessi aðferð höfundar á ósjálfráða skrift súrrealista en þó er eins og ljóðunum sé meira ritstýrt. Mörg þeirra hafa nokkuð markvissa formgerð, sem byggist á heildrænni myndsköpun og endurtekningum.“
„Garðar er vel að viðurkenningu dómnefndar um bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar, sem hann hlaut á síðasta ári, kominn. Hvað er eðlilegra en að túlka uppbrot veruleikans með uppbroti máls?“