Vegferð í myrkri er fyrsta bók höfundar og gefin út af honum sjálfum sér til yndisauka.
Ljóðin bera merki þess að vera fyrstu ljóð – en auðvitað ekki æskuverk því Garibaldi var 28 ára þegar bókin kom út.
Ljóðin fjalla um ástina, bernskuna og margvíslega erfiðleika hennar, og má finna enduróm þessara efna í síðari bókum Garibalda.
Í eina ritdóminum sem birtist var bent á að Steinn Steinarr hefði einnig alist upp við erfið kjör en tekist að gera úr þeim efnivið stórkostlegan skáldskap.
Eftir að bókin kom út einhenti Garibaldi sér í stíft og langt háskólanám í bókmenntafræði og sendi ekki frá sér ljóðabók í 14 ár og var það sjónhimnur sem kom út 1997 og síðan 5 bækur í viðbót næstu tíu árin.
Helgi Örn Helgason beitti nýstárlegri tækni við gerð mynda í bókinni. Tæknin byggir á bogaformum japanskra leturtákna með mjóum oddum en breiðari miðjum. Helgi dregur formin þó stundum út í fígúratífari mót. Myndirnar teiknaði hann á síður í símaskrá. Sjást því í flestum myndanna nafnarunur í fjórum dálkum með heimilisföngum og símanúmerum. Þetta má t.d. sjá í ljóðinu Hörkutól.
Eins og alltaf í samstarfi Garibalda og Helga er val myndanna í höndum höfundar, þ.e. Helgi lætur í té mismikinn fjölda mynda sem höfundur velur úr og tengir við einstök ljóð. Er því ekki um hefðbundnar myndlýsingar að ræða.