Persónuverndarstefna Garibalda ehf

Garibaldi ehf. (kt. 411204-2940) leggur mikla áherslu á að vernda persónuupplýsingar einstaklinga og virða réttindi þeirra. Hér er því lýst með hvaða hætti vinnsla persónuupplýsinga fer fram hjá fyrirtækinu.

  1. Hvað eru persónuupplýsingar?
    • Allar þær upplýsingar sem eru persónugreinanlegar, þ.e. upplýsingar sem hægt er að rekja beint eða óbeint til ákveðins einstaklings.
  1. Persónuupplýsingar sem Garibaldi ehf. vinnur um viðskiptavini sína eru mismunandi eftir því hvaða snertifleti viðskiptavinurinn á við félagið:
    • Við kaup á vöru af Garibalda ehf í gegnum netið, símann eða tölvupóst er upplýsingum safnað um nafn, kennitölu, heimilisfang, tölvupóstfang og símanúmer viðskiptavinar ásamt debet- eða kreditkortaupplýsingum. Þetta er gert til þess að unnt sé að gefa út reikninga, fá greiðslu og koma vörunum á rétta staði. Garibaldi ehf heldur líka utan um kaupsögu viðskiptavina með þessum hætti.
    • Tæknileg gögn: Þegar fólk heimsækir vefsíðu Garibalda safnar netþjónn fyrirtækisins gögnum sem vafri viðkomandi sendir út, þ.e. upplýsingum um IP-tölu, hvaðan heimsóknin kemur, leitarorð og vafra. IP -tölur eru ekki notaðar til að auðkenna viðkomandi notanda persónulega.
    • Garibaldi ehf mælir umferð um vefsvæði sitt með Google Analytics. Upplýsingar sem sú mæling veitir eru ekki persónurekjanlegar og eingöngu hugsaðar til að betrumbæta vef Garibalda. Eins notar Garibaldi ehf þjónustu Facebook og Google Ads fyrir stafræna markaðssetningu til greiningar á áhrifum auglýsinga fyrirtækisins.
  1. Miðlun upplýsinga til þriðja aðila:
    • Garibaldi ehf kann að miðla persónuupplýsingum fólks til þriðja aðila, t.d. til þeirra sem sjá um upplýsingatækniþjónustu fyrir félagið, til innheimtufyrirtækis, og endurskoðanda Garibalda ehf. Vinnsluaðilar kunna einnig að fá afhentar persónuupplýsingar vegna tiltekinnar gagnavinnslu fyrir Garibalda ehf.
    • Eins kunna persónuupplýsingar að vera afhentar þriðja aðila að því marki sem krafist er á grundvelli laga eða reglna, svo sem Ríkisskattstjóra eða öðrum eftirlitsaðilum.
  1. Hvernig öryggi persónuupplýsinga er tryggt:
    • Garibaldi ehf leitast ávallt við að gera viðeigandi ráðstafnir til að tryggja öryggi þeirra persónuupplýsinga sem félagið býr yfir, í samvinnu við 1984 hf sem fer með vinnslu og hýsingu á öllu efni Garibalda.
    • Ef upp kemur öryggisbrestur sem hefur áhrif á persónuupplýsingar mun það strax verða tilkynnt Persónuvernd.
  1. Fólk á rétt á aðgangi að þeim upplýsingum sem Garibaldi hefur um það.

 

Persónuverndarstefna samþykkt 27. ágúst 2025