Fuglar í búri. Ljóð eftir afrísk–bandarísk skáld
Þýðingar gerði Garibaldi.  Garibaldi ehf. 2015.

349 bls.

Mynd á framhlið Kvist (Erna Maren Kvist Baldursdóttir).

Fuglar í búri geymir 68 ljóð eftir 30 afrísk–bandarísk skáld og eitt þjóð-kvæði frá 19. öld. Skáldin eru 16 karlar og 14 konur. Elsta ljóðið er fyrsta ljóðið eftir skáld af afrískum uppruna sem birtist á prenti 1760 en það yngsta er frá árinu 2017. Skáldin í bókinni hafa flest verið í fremstu röð afrísk–bandarískra skálda og vakið athygli langt út fyrir eigin hóp og þjóð.

Afrísk–bandarísk ljóðagerð geymir merkilega og fagra strauma frá munnmælasögum og listum Afríku, um sögur ánauðugra og frjálsra í leit að fyrirmyndum, sögur baráttufólks fyrir mannréttindum og af ágreiningi um aðferðir, til samtíma okkar þar sem möguleikarnir virðast ótal margir. Fyrirmyndirnar eru illar og góðar, vísa réttan veg og rangan, skapa bjargræði frelsunarinnar en um leið kvöl og pínu krossberans. Umfram allt snúast ljóðin um að líf svartra skipti raunverulega máli.

Meðal skáldanna í bókinni eru Phillis Wheatley, Sojourner Truth, Frances E.W. Harper, W.E.B. Du Bois, James Weldon Johnson, Jean Toomer, Langston Hughes, Maya Angelou, Martin Luther King yngri, Audre Lorde, June Jordan, Quincy Troupe, Nikki Giovanni, Alice Walker, Ntozake Shange, E. Ethelbert Miller, Rita Dove, Camille T. Dungy og Cortney Lamar Charleston.

Garðar Baldvinsson. Formáli.

Verð 4.350.–   Kaupa