smávinir
smávinir fagrir foldarskart (2019) fjallar um Kína, alþýðu þess, menningu og sögu en Garibaldi heimsótti borgina Gvangsjó þar í landi árið 2007. Í bókinni er nokkrum undrastöðum lýst og gefin mynd af einni fjölskyldu í þremur kynslóðum ásamt umfjöllun um Maó Zedong og arfleifð hans.
Titill bókarinnar er fenginn úr Hulduljóðum Jónasar Hallgrímssonar sem lætur Eggert Ólafsson mæla þau orð en hann er þar í hlutverki landsföðurins mikla eins og Maó í kínverskri menningu. Ljóðin eru afar gagnrýnin á ástand mála í þessu stóra ríki sem byggir á kapítalisma og kommúnisma í senn, hefur skapað alþýðunni rúm kjör á efnahagssviðinu en einkar kröpp hvað málfrelsi og mannréttindi varðar. Ljóðin sýna einnig hvað kínversk alþýða og íslensk eiga margt sameiginlegt.
Garibaldi hannaði kápuna með myndinni „Dauði Eggerts Ólafssonar“ eftir I. Haas frá 1769.